Ríkiskaup fyrir hönd Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), óskar eftir tilboðum í verkefnið Þingvallabærinn – Viðhaldsverkefni.
Verk þetta felst í að endurbyggja allt innandyra í Þingvallabænum, þ.e. pússa útveggi, uppbygging allra innveggja og lofta ásamt málun veggja og lofta. Enn fremur skal leggja gólfefni í allt húsið, setja upp innihurðir og innréttingar sem hvoru tveggja er sérsmíðað í allt húsið.
Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.
| Útboðsgögn afhent: | 30.03.2023 kl. 07:00 |
| Skilafrestur | 14.04.2023 kl. 12:00 |
| Opnun tilboða: | 14.04.2023 kl. 13:00 |
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.












