Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið endurbyggingu þekju og lagna á Svartaskerbryggju í Þorlákshöfn
Helstu verkþættir eru:
- · Rífa upp og saga malbik.
- · Leggja vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
- · Steypa um rafmagnshús.
- · Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik.
- · Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju alls um 2350 m².
- · Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
- · Malbika þekju um 5000 m².
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 29. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.