Home Fréttir Í fréttum 15.04.2026 Reykja­nesbraut (41), Sæbraut í stokk – Undir­búnings­fram­kvæmd­ir, verk­hönn­un

15.04.2026 Reykja­nesbraut (41), Sæbraut í stokk – Undir­búnings­fram­kvæmd­ir, verk­hönn­un

5
0
Loftmynd sem sýnir þann hluta Sæbrautar sem verður lagður í stokk. Með stokknum hverfa tvenn gatnamót sem eru nú ljósastýrð. Reykjavíkurborg

Vegagerðin óskar eftir tilboði í verkhönnun á bráðabirgðaleiðum vegna framkvæmda við Sæbraut í stokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.

Verki skal að fullu lokið  30. nóvember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 13. mars 2026.

Haldinn verður kynningarfundur á Teams föstudaginn 20. mars nk. kl. 13 þar sem útboðið verður kynnt sérstaklega.

Tilboðum er skilað rafrænt í  útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.