Home Fréttir Í fréttum 12.04.2023 Hreinsun gatna og gönguleiða 2023-2024, útboð II

12.04.2023 Hreinsun gatna og gönguleiða 2023-2024, útboð II

39
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hreinsun gatna og gönguleiða 2023-2024, útboð II, EES útboð nr. 15776.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í hreinsun gatna og gönguleiða í austurhluta Reykjavíkur. Um er að ræða hreinsun og þvott á götum, bílastæðum við götur, gönguleiðum og grassvæðum í götunánd, eftir því sem við á og óskað er eftir.

Helstu magntölur eru:

  • Heildarlengd gatna er um 221 km
  • Heildarlengd gönguleiða er um 425 km.

Verklok: 14. mars 2024.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 9. mars  2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 12. apríl 2023.