Home Fréttir Í fréttum 22.03.2023 Borgaskóli, endurgerð lóðar 2023 – 1. áfangi

22.03.2023 Borgaskóli, endurgerð lóðar 2023 – 1. áfangi

195
0
Borgaskóli, Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Borgaskóli, endurgerð lóðar 2023 – 1. áfangi, útboð nr. 15765

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið snýr að endurgerð á lóð Borgaskóla að Vættaborgum 9, 112 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á norð-vesturhluta skólalóðar en það svæði er alls u.þ.b 4500 m² að stærð.

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verklok: 11. ágúst 2023.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 7. mars 2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 22. mars 2023.