Home Fréttir Í fréttum Ekki beint kostnaðar­aukning heldur ný fram­kvæmd

Ekki beint kostnaðar­aukning heldur ný fram­kvæmd

197
0
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. VÍSIR

Framkvæmdastjóri Betri samgangna útskýrði í dag í Sprengisandi fimmtán milljarða hækkun á kostnaði við samgöngusáttmála. Þingmaður Miðflokksins segir að það þurfi að skera kostnaðinn niður, meðal annars með því að sleppa ákveðnum verkefnum.

<>

Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri opinbera hlutafélagsins Betri samgöngur, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, voru gestir Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi á Bylgjunni. Þar ræddu þeir samgöngusáttmálann sem margir telja að sé þegar sprunginn, áður en framkvæmdir eru hafnar.

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu í síðasta mánuði um að endurskoðunar ákvæði sáttmálans yrði virkjað. Meðal annars vegna þess að lítið hefur gerst á framkvæmdahlið sáttmálans og að kostnaður við sáttmálann hafi aukist um fimmtán milljarða.

Davíð segir kostnaðurinn hafi ekki beint aukist heldur sé framkvæmdin við Sæbraut ekki lengur sama framkvæmdin og kveðið var á um í upphafi.

„Það voru til gamlar áætlanir fyrir framkvæmdastoppið um mislæg gatnamót. Svo var ákveðið í sáttmálanum að það sé það mikil umferð þarna að það þurfi að gera stokk. Það fellst í því að það þarf að koma fyrir hjólastígum og Borgarlínunni. Þetta snýst ekki bar aum umferðina, þetta snýst líka um borgarbraginn, um hverfið þarna. Að þú getir sett hraðbrautina sem þarna er og verður áfram ofan í jörðina,“ segir Davíð.

Ákveðið var að breyta þessu í stokk en hvergi lá fyrir hvað það myndi kosta. Því myndi hann ekki segja kostnaðaraukningin sé fimmtán milljarðar heldur sé þetta allt önnur framkvæmd.

Bergþór vill aftur á móti fresta Sæbrautarstokknum um einhvern tíma, jafnvel slá hann alveg af borðinu. Frekar klára Sundabrautina sem sé arðsamasta verkefnið af þeim öllum.

„Þannig það sé hægt að tappa af í gegnum hana umferðarflæði áður en við förum í það verkefni sem mögulega verður að þrengja Sæbrautina í 1+1 á framkvæmdatímanum sem verður tvö til þrjú ár. Þar verður allt í köku árum saman ef fram heldur sem horfir. Það verður bara forsmekkur af því sem verður við Miklubrautarstokkinn þegar að því kemur,“ segir Bergþór.

Heimild: Visir.is