Home Fréttir Í fréttum Byggingin átti að kosta um fjóra milljarða

Byggingin átti að kosta um fjóra milljarða

109
0
Daníel Jakobsson er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish. VÍSIR

Gert var ráð fyrir því í kostnaðaráætlun Arctic Fish að byggingin sem brann á Tálknafirði í morgun ætti að kosta um fjóra milljarða króna. Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar fiskeldisfyrirtækisins segir að nákvæmar tölur um tjón liggi ekki fyrir.

<>

Eldur kviknaði í húsnæði í eigu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish í morgun. Húsið var í uppbyggingu og að sögn Daníels Jakobssonar, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Arctic Fish, átti að taka það í notkun í næstkomandi júní.

„Það er alelda húsið en slökkviliðið er búið að ná stjórn á aðstæðum. Það voru tveir sem sóttu sjúkrahús með minniháttar brunasár. Sem betur fer fór allt vel með fólk og fisk,“ segir Daníel í samtali við fréttastofu.

Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir því að bygging hússins kosti um fjóra milljarða króna. Þó er ekki vitað hversu miklar skemmdir urðu á húsnæðinu en ljóst er að þetta er mikið tjón. Sem betur fer barst eldurinn ekki í nærliggjandi byggingar sem einnig eru í eigu Arctic Fish.

Heimild: Visir.is