Home Fréttir Í fréttum Nýtt íþróttahús Reyðfirðinga vígt á sunnudag

Nýtt íþróttahús Reyðfirðinga vígt á sunnudag

133
0
Mynd: Fjarðabyggð

Nýtt íþróttahús á Reyðarfirði verður vígt á sunnudag. Það verður þá tilbúið til íþróttaiðkunar þótt enn sé verið að ganga frá lausum endum.

<>

Fyrsti opinberi viðburðurinn í húsinu var fyrir þremur vikum þegar þorrablót Reyðfirðinga var haldið þar. Í gær fór svo fram svokölluð öryggisúttekt á húsinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Fjarðabyggð er enn verið að ganga frá síðustu smáatriðunum, svo sem setja upp hurðapumpur og fleira slíkt.

Húsið verður opnað formlega með fjölskyldudegi frá klukkan 13-16. Þangað mæta gestir úr Latabæ, Íþróttaálfurinn og Solla stirða, Jón Björn Hákonarson ávarpar samkomuna og íþróttamanneskja Fjarðabyggðar.

Heimild: Austurfrett.is