Home Fréttir Í fréttum Kynningarfundur vegna nýs íbúðahverfis á Blönduósi

Kynningarfundur vegna nýs íbúðahverfis á Blönduósi

212
0
Nýtt íbúðahverfi á Blönduósi. Mynd: hunabyggd.is

Húnabyggð boðar til kynningarfundar vegna nýs byggingasvæðis á Blönduósi við göturnar Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut.

<>

Fundurinn fer fram í Félagsheimilinu á Blönduósi miðvikudaginn 15. febrúar og hefst klukkan 18.

Svæðið er skilgreint íbúðasvæði í Aðalskipulagi 2010-2030 en í fyrra var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir svæði þar sem leyfilegur fjöldi íbúða var aukinn svo byggja megi fleiri minni íbúðir en gert var ráð fyrir í aðalskipulaginu. Svæðið gerir ráð fyrir 49-74 nýjum íbúðum.

Sjá nánar á vef Húnabyggðar.

Heimild: Huni.is