F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hreinsun stofnanalóða 2023-2024, útboð IV – Leikskólar – Reykjavík vesturhluti, útboð nr. 15730
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felur í sér hreinsun stofnanalóða í vesturhluta Reykjavíkur. Um er að ræða hreinsun og þvott á bílastæðum við leikskóla, eftir því sem á við á og óskað er eftir.
Helstu magntölur eru:
- Heildarflatarmál bílastæða leikskóla er um 30.000 m2.
Verklok: 14. mars 2024.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 17:00 þann 18. janúar 2023.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 7. febrúar 2023.