Home Fréttir Í fréttum 07.02.2023 Hreinsun stofnanalóða 2023-2024, útboð III – Leikskólar – Reykjavík austurhluti

07.02.2023 Hreinsun stofnanalóða 2023-2024, útboð III – Leikskólar – Reykjavík austurhluti

75
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hreinsun stofnanalóða 2023-2024, útboð III – Leikskólar – Reykjavík austurhluti, útboð nr. 15729

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felur í sér hreinsun stofnanalóða í austurhluta Reykjavíkur. Um er að ræða hreinsun og þvott á bílastæðum við leikskóla, eftir því sem á við á og óskað er eftir.

Helstu magntölur eru:

  • Heildarflatarmál bílastæða leikskóla er um 25.000 m2.

Verklok: 14. mars 2024.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 18. janúar 2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 7. febrúar 2023.