F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hreinsun stofnanalóða 2023-2024, útboð II – Grunnskólar – Reykjavík vesturhluti, EES útboð nr. 15732
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felur í sér hreinsun stofnanalóða í vesturhluta Reykjavíkur. Um er að ræða hreinsun og þvott á bílastæðum við grunnskóla, ásamt hluta grunnskólalóða, eftir því sem á við á og óskað er eftir.
Helstu magntölur eru:
- Heildarflatarmál bílastæða og lóða grunnskóla er um 173.000 m2.
Verklok: 14. mars 2024.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 19. janúar 2023.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 21. febrúar 2023.