Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í að útvega 2.018 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri og ný hverfi á Akranesi.
Lamparnir eru ætlaðir fyrir húsagötur, opin svæði og stíga. Þeir skulu uppfylla kröfur um útlit, tæknilega og ljóstæknilega eiginleika og skulu koma vel út í lífferilskostnaðar-greiningu, LCC.
Samningur um lampana er til þriggja ára. Frávikstilboð eru ekki leyfð. Verkið er auglýst á EES svæðinu.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar, slóð https://akranes.ajoursystem.net/.
Útboðsgögn afhent: | 12.01.2023 kl. 10:00 |
Skilafrestur | 21.02.2023 kl. 10:00 |
Opnun tilboða: | 21.02.2023 kl. 10:00 |
Tilboðum með umbeðnum gögnum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 21. febrúar 2023. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs