Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill að beðið verði með milljarðaframkvæmdir á Grófarhúsi í miðborg Reykjavíkur í ljósi afleitrar fjárhagsstöðu borgarinnar.
Alla skynsemi skorti í fyrirætlanir meirihlutans. Grófarhús gjörbreytist á næstu árum samkvæmt vinningstillögu.
Grófarhús var reist árið 1931 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Núverandi útlit þess er frá árinu 1995, þegar það var klætt með lituðum stálplötum sem hafa staðið misvel af sér veður og vinda. Nú vilja borgaryfirvöld færa húsið í örlítið glæstara horf, nær upphaflegri mynd.
Efnt var til hönnunarsamkeppni á nýliðnu ári og á fundi borgarráðs í síðustu viku var samþykkt að ganga frá samkomulagi við sigurvegarana; hollensku arkitektastofuna JVST. Gert er ráð fyrir 50 milljónum í undirbúning og hönnunarvinnu á þessu ári og 200 milljónum á því næsta.
Of dýr endurgerð
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir skjóta skökku við að ráðast í svo umfangsmikið verkefni í ljósi bágrar fjárhagsstöðu borgarinnar og rifjar upp nýlegar niðurskurðaraðgerðir upp á sjö milljarða.
„Svo erum við hér og þessi endurgerð á að kosta fjóra milljarða á þessu kjörtímabili og sex milljarða þegar yfir lýkur. Og hvað er þá planið? Eigum við bara að spara til þess að eyða öllu í að endurgera þetta hús?“
Vinningstillagan sem hinar umdeildu framkvæmdir eiga að byggja á er undir yfirskriftinni Vitavegur. Hún dregur nafn sitt af breiðum aðalstiga sem tengja á hæðirnar saman.
Á meðal þess sem gjörbreytist er forsalur Borgarbókasafnsins en safnið skipar stærstan hluta Grófarhúss. Á þeim bletti er reiknað með svokölluðu Vitatorgi, stiginn upp á aðra hæð verður tekinn, brotið milli hæða og opnað upp í loft.
Skortir alla skynsemi
Þá breytist ásýnd hússins mjög, samkvæmt tillögunni. Gluggar verða víða stækkaðir og reiknað með göngugötu í gegnum húsið. Og Sjálfstæðismenn eru vissulega afar hrifnir af tillögunni, viðurkennir Ragnhildur Alda.
„Þetta snýst í raun og veru ekki um ágæti tillögunnar, þetta snýst um að við höfum ekki efni á þessu. Það skortir einhvern veginn alla skynsemi í þetta. Ég meina, við færum ekki að gera upp eldhúsið heima hjá okkur ef fjölskyldan er varla að ná endum saman.“
Kynningu á vinningstillögu JVST arkítekta, Inside Outside, Hanrath Architect, Kreatíva teiknistofu, VSÓ ráðgjöf og Örugg verkfræðistofu má nálgast hér.
Heimild: Visir.is