Home Fréttir Í fréttum 16 þúsund nýjar í­búðir í borginni á næstu 10 árum

16 þúsund nýjar í­búðir í borginni á næstu 10 árum

118
0
Hermann Jónasson, Heiða B. Hilmisdóttir borgarfulltrúi, Sigurður Ingi Jóhannsson, Dagur B. Eggertsson, og Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi að undirritun lokinni. Ljósmynd: Róbert Reynisson

Innviðaráðherra og borgarstjóri undirrituðu í dag samkomulag um að byggðar verði 16 þúsund íbúðir í Reykjavík á næstu 10 árum.

<>

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í dag samkomulag um aukið framboð á íbúðarhúsnæði í Reykjavík á tímabilinu 2023-2032 og fjármögnun á uppbyggingu á hagkvæmum íbúðum og félagslegu húsnæði.

Markmiðið er að í Reykjavík verði byggðar um 16 þúsund íbúðir á næstu 10 árum „með áherslu á kröftuga uppbyggingu á fyrri hluta tímabilsins“. Stefnt er að því að byggja allt að 2 þúsund íbúðir á ári á næstu 5 árum „eða á meðan verið er að mæta uppsafnaðri þörf og skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði“.

Í tilkynningu innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar segir að ofangreind markmið séu í takti við rammasamning ríkis og sveitarfélaga um að byggja þurfi 35 þúsund íbúðir á landsvísu á fyrrgreindu tímabili til að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf.

Tekið er fram að leitast verði til að tryggja fjölbreytt framboð húsagerða og búsetukosta og húsnæðisöryggi fyrir alla félagshópa.

„Það er afar ánægjulegt að Reykjavík hafi riðið á vaðið og skuldbundið sig til að stuðla að hraðri uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á næstu árum, en fram undan er stöðug uppbygging um allt land. Samningurinn er sá fyrsti í röðinni og jafnframt sá stærsti og hann mun stuðla að jafnvægi og breytingum á húsnæðismarkaði. Þar skiptir mestu að auka framboð í almenna íbúðakerfinu þar sem ríki og Reykjavíkurborg munu koma sameiginlega að borðinu með niðurgreiðslu íbúða með stofnframlögum og hlutdeildarlánum fyrir fólk undir ákveðnum tekju- og eignarmörkum,“ segir Sigurður Ingi.
„Þessi samningur er gríðarlega mikilvæg tímamót og fagnaðarefni. Ég hef lengi talað fyrir því að það þurfi húsnæðissáttmála til að ná jafnvægi og heildarsýn á húsnæðismarkaði og því er mikilvægt að önnur sveitarfélög fylgi nú í kjölfarið og af sama metnaði. Markmiðið er öflug uppbygging og húsnæðisöryggi fyrir þær fjölbreyttu þarfir sem við þurfum að mæta. Fyrir Reykjavík er það sértakt fagnaðarefni að samstaða sé um að borgin verði leiðandi í húsnæðisuppbyggingu næsta áratuginn,” segir Dagur.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hermann Jónasson forstjóri Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar undirrita samninginn í Ráðherrabústaðnum í dag.
© Róbert Reynisson

Heimild: Vb.is