Home Fréttir Í fréttum Forval verktaka að hefjast vegna nýrrar Ölfusárbrúar

Forval verktaka að hefjast vegna nýrrar Ölfusárbrúar

118
0
Nýja Ölfusárbrúin verður 330 metra löng og með sextíu metra háum brúarstöpli. VEGAGERÐIN

Forval vegna smíði nýrrar Ölfusárbrúar verður auglýst í janúar og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. Brúarsmíðin verður þó talsvert seinna á ferðinni en búið var að lofa kjósendum.

<>

Fjallað var um verkefnið í fréttum Stöðvar 2 en brúin yfir þetta vatnsmesta fljót landsins verður eitt tignarlegasta mannvirki landsins, 330 metra löng og með sextíu metra háum brúarstöpli sem slagar upp í hæð Hallgrímskirkjuturns. Og núna er að komast hreyfing á verkið.

Svona mun brúin líta út séð frá Selfossi.
VEGAGERÐIN

„Núna í janúar ætlum við að auglýsa forval fyrir verktaka þannig að við getum valið úr hæfa aðila til að taka þátt í útboði, sem fer þá fram með vorinu, kannski í apríl-maí, og stefnum þá að því að það liggi fyrir verksamningur fyrir haustið,“ segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.

Guðmundur Valur Guðmundsson er framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.
EGILL AÐALSTEINSSON

Verkið verður boðið út á grundvelli laga um samvinnuverkefni en Vegagerðin hélt kynningarfund um verkið í fyrra. Í framhaldi af honum var auglýst eftir áhugasömum aðilum og lýstu 9-12 aðilar yfir áhuga.

„Við áttum samtöl við þá í sumar um verkið og þar með talið útfærslur á fjármögnun og hinu og þessu,“ segir Guðmundur.

Svona geta menn ímyndað sér að útsýn ökumanns verði á brúnni í átt til Ingólfsfjalls.
VEGAGERÐIN

Hann segir líklegt að farin verði sú leið að fjármögnun á framkvæmdatíma verði hluti af útboðspakkanum. Guðmundur telur þó óvarlegt að slá neinu föstu um brúartollinn en rifjar upp að síðastliðið vor hafi menn verið að tala um 300-400 krónur. Gjaldið ráðist þó af því á hve löngum tíma menn ætli að greiða verkið niður og hversu mikil notkunin verði á brúnni.

Hann segir líklegt að framkvæmdir hefjist undir lok næsta árs og verði komnar á fullt árið 2024.

Nýja Ölfusárbrúin mun setja svip á umhverfið.
VEGAGERÐIN

Ráðherra samgöngumála var raunar búinn að segja kjósendum það fyrir síðustu þingkosningar að þessi glæsilega brú yrði tilbúin annaðhvort í lok árs 2023 eða á árinu 2024. En hvenær áætla menn núna verklok?

„Miðað við þessar áætlanir og að þær gangi eftir þá ættum við 2026, þá ætti verkinu að vera lokið ,“ svarar framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.

Heimild: Visir.is