Home Fréttir Í fréttum Skiptum lokið í þrotabúi Megna – Lýstar kröfur um 428 milljónir króna

Skiptum lokið í þrotabúi Megna – Lýstar kröfur um 428 milljónir króna

172
0
Megna ehf. hét áður Glerborg en nafnið og hluti starfseminnar var selt til Íspan í febrúar 2021.

Skiptum er lokið í þrotabúi glerja- og speglafyrirtækisins Megna ehf. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 11. febrúar á þessu ári en skiptum var lokið þann 22. desember síðastliðinn.

<>

Samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu í morgun voru lýstar kröfur tæplega 428 milljónir króna Að frádregnum skiptakostnaði var ráðstafað upp í lýstar sértökukröfur kr. 4.697.392, upp í búskröfur kr. 14.594.475 og upp í veðkröfur kr. 26.356.523. Samtals nam úthlutun kr. 45.648.390 eða 10,68% af lýstum kröfum.

Fyrirtækið hét áður Glerborg en í febrúar 2021, ári fyrir gjaldþrotið, seldi fyrirtækið gler- og speglastarfsemi sína auk vörumerkisins yfir til Íspan og tók upp nafnið Megna.

 Samkvæmt viðtali Markaðs Fréttablaðsins við Rúnar Árnason, framkvæmdastjóra Megna, var ætlunin að einbeita sér að sértækari þjónustu, til að mynda gluggalausnir fyrir verktaka.

Covid-19 helsta ástæðan fyrir gjaldþrotinu

Þær áætlanir gengu ekki eftir og í lok október óskaði fyrirtækið eftir að fara í greiðslustöðvun. Sagði Rúnar í viðtali við Morgunblaðið að ástæðuna mætti rekja að stórum hluta til Covid-19 faraldursins.

„Tap á rekstr­in­um er margþætt. Covid-19 hægði á öllu í lang­an tíma eins og flest­um er ljóst. Covid-19 hægði og/​eða stoppaði fram­leiðslu okk­ar, sama gilti um flutn­ing til lands­ins. Mikl­ar taf­ir kosta mikla pen­inga.

Mikl­ar og óvænt­ar er­lend­ar kostnaðar­verðshækk­an­ir eru ein af­leiðing­in til viðbót­ar. Vog­un tap­ar, launa­hækk­an­irn­ar miklu höfðu nei­kvæð áhrif og munu gera til lengri tíma. Allt þetta tek­ur í,“ sagði Rún­ar og því hefði verið tekin sú ákvörðun að óska eftir greiðslustöðvun til að lágmarka skaðann.

Heimild: Dv.is