Home Fréttir Í fréttum Nú hægt að fylgjast með í­búða­upp­byggingu í raun­tíma

Nú hægt að fylgjast með í­búða­upp­byggingu í raun­tíma

220
0
Með nýju korti HMS verða upplýsingar um íbúðauppbyggingu birtar í rauntíma en ekki tvisvar á ári líkt og gert var áður fyrr. VÍSIR/VILHELM

Nýtt gagnvirkt Íslandskort Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er komið í loftið. Þar er hægt að skoða öll byggingaráform á landinu í rauntíma sem og skoða allar íbúðir í byggingu. Hingað til hafa upplýsingarnar einungis verið birtar tvisvar á ári. Tölfræðingur hjá HMS segir að kortið verði mikilvægt stjórntæki á sviði húsnæðismála.

<>

Nýja kortið sýnir rauntímaupplýsingar um fjölda íbúða í byggingu samkvæmt mannvirkjaskrá. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt er að sjá fjölda íbúða í byggingu á einum stað. Með kortinu geta sveitarfélög, verktakar, lánastofnanir og fleiri byggt áætlanir sýnar á nákvæmari tölum en áður.

Þorsteinn Arnalds, tölfræðingur hjá HMS, segir nýja kortið vera grundvöllur fyrir að geta séð hvernig byggingamarkaður er að þróast.

„Þetta verður mikilvægt stjórntæki bæði, á sviði húsnæðismála til þess að gera raunhæfar áætlanir, og einnig til þess að fylgjast með í byggingareftirliti sem tryggir það að verið sé að fylgjast með þeim framkvæmdum sem eru í gangi. Það er hægt að sjá í fyrsta lagi fjöldann sem er í byggingu, svo er hægt að sjá hvar þær eru. Í mannvirkjaskrá er einnig hægt að sjá stöðu allra bygginga, sama hvort þær eru í byggingu eða eru fullbúnar. Bæði byggingarleyfi og úttektir sem farið hafa fram á byggingunum,“ segir Þorsteinn í samtali við fréttastofu.

Á opnum fundi sem fer nú fram í húsnæði stofnunarinnar í Borgartúni er fjallað um þetta nýja kort en einnig íbúðaþörf á Íslandi. Þorsteinn segir að miðað við áætlanir þeirra sé einhver óuppfyllt íbúðaþörf en fjallað verður um hvað hefur áhrif á metna íbúðaþörf og helstu óvissuþætti hennar.

„Það hefur verið fyrirferðarmikið í umræðunni hugsanlegt ofmat á mannfjölda. Það sem skiptir meira máli fyrir framtíðaríbúðaþörf er þróun á mannfjölda, hversu mikið og hratt okkur fjölgar. Það hefur undanfarið verið megindrifkrafturinn í því hvernig við leggjum mat á þörf fyrir nýjar íbúðir. Í meginatriðum hefur matið verið mjög sambærilegt frá árinu 2019 þegar við byrjuðum á þessu. Til þess að fullnægja þörf fyrir íbúðir þá þyrfti að byggja um þrjú til fjögur þúsund íbúðir á ári næstu fimm árin,“ segir Þorsteinn.

Miðað við áætlanir HMS þá er einhver óuppfyllt íbúðaþörf en Þorsteinn segir það erfitt að átta sig á því í núinu hversu mikill skortur sé á íbúðum. Eftirspurn á fasteignamarkaði ráðist oft til skamms tíma, sérstaklega út af þáttum eins og vöxtum og kaupmætti.

Heimild: Visir.is