Um áttatíu manns sóttu hádegisfund Reykjavíkurborgar sem haldinn var til kynningar á rafrænum byggingarleyfisumsóknum í Hinum húsinu við Rafstöðvarveg síðastliðinn föstudag.
Farið var yfir nýtt umsóknarferli, skil á rafrænum gögnum og afgreiðsluferil byggingarfulltrúa.
Umræður voru í lok fundar og boðið var upp á hádegissnarl.
Kynningarfundurinn var tekinn upp og er hægt að horfa á hann hér fyrir neðan.
Heimild: Reykjavik.is