Home Fréttir Í fréttum Hefja mestu upp­byggingu í mið­bæ Hafnar­fjarðar í ára­tugi

Hefja mestu upp­byggingu í mið­bæ Hafnar­fjarðar í ára­tugi

261
0
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar. HAFNARFJARÐARBÆR

Fyrsta skóflustunga að mestu uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi var tekin í dag en reiturinn er þar sem Hafnarfjarðarbíó og Kaupfélag Hafnarfjarðar voru áður.

<>

Til stendur að reisa níu þúsund fermetra blandað íbúða- og verslunarhúsnæði á svæðinu auk hótels og bókasafns. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið yfir í um 21 ár og er markmiðið að tengja saman Fjarðargötu og Strandgötu.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að íbúar hafi beðið mjög lengi eftir þessum áfanga eða allt frá því að Hafnarfjarðarbíó var rifið fyrir rúmum tuttugu árum. Síðan þá hafi ýmsar hugmyndir sprottið upp um uppbyggingu á reitnum.

„Við erum ákaflega stolt af því að það sé verið að stíga þetta skref hérna núna. Það er búið að eiga sér dálítinn aðdraganda, og búið að leggja mikinn metnað í að gera þessa framkvæmd og þessar byggingar glæsilegar og tengja vel við gamla bæinn okkar. Þetta verður gríðarleg lyftistöng fyrir miðbæinn og Hafnarfjörð allan þegar þetta verður risið,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Fyrstu skóflustunguna tóku þau Rósa bæjarstjóri, Benedikt Rúnar Steingrímsson og Haraldur R Jónsson, stjórnarmenn 220 Fjarðar ehf.
HAFNARFJARÐARBÆR

Meðal annars stendur til flytja bókasafn bæjarins í nýja byggingu á reitnum.

„Við sjáum hvernig bókasöfn eru að verða svona hálfpartinn menningarmiðstöðvar og eru að breyta aðeins um hlutverk. Við ætlum að nútímavæða bókasafn Hafnarfjarðar, með bækur í forgrunni að sjálfsögðu. Þannig að þetta verður alveg stórkostleg breyting og verður hið glæsilegasta mannvirki.“

Margir aðilar koma að þessu umfangsmikla verkefni og segir Rósa að bæjaryfirvöld hafi átt í góðu samstarfi við framkvæmdaaðila. Félagið 220 Fjörður ehf. stendur að uppbyggingunni en félagið er jafnframt stærsti eigandinn í verslunarmiðstöðinni Firði. Framkvæmdir munu taka í það minnsta tvö ár og er gert ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun í árslok 2024 og fram eftir 2025.

„Það verður bara frábært þegar þetta verður allt risið upp hérna og við fáum fjölbreytt verslunarhúsnæði og fleira til hérna í bæinn okkar,“ segir Rósa að lokum

Heimild: Visir.is