Veitur ohf. óska eftir tilboðum í verkið: “VEV-2022-13 Gvendarbrunnar-Endurbætur þaka”
Verkið felst í endurnýjun á núverandi þakyfirborði Gvendarbrunnahúss ásamt viðgerðum á yfirborði, auk nýrra regnvatnslagna með útveggjum. Þá er í þessu verki einnig útskipti á þakglugga sem þverar mannvirkið fyrir miðju.
Verkinu er skipt í þrjá megin áfanga þannig:
Áfangi 1: Norður hluti þaks að þakglugga ásamt regnvatnslögnum á þeim hluta.
Áfangi 2: Þakgluggi.
Áfangi 3: Suður hluti þaks og regnvatnslagnir.
Verkið er unnið á vatnsverndarsvæði og ber því verktaka að starfa í samræmi við almennum samningsskilmálum Veitna. Sértækt áhættumat vegna verksins verður afhent verktaka í upphafi verkefnis.
Sjá nánari upplýsingar um verkið í útboðsgögnum.
Útboðsgögn afhent: | 29.11.2022 kl. 13:00 |
Skilafrestur | 14.12.2022 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 14.12.2022 kl. 14:00 |
Áhugasömum er bent á að kynningarfundur verður haldinn fyrir verkefnið á verkstað þann 7 desember næstkomandi kl. 14:00, sbr. nánari upplýsinar í útboðsgögnum.