Home Fréttir Í fréttum Turninn á Litla-Hrauni verður rifinn: „Liður í því að gera um­hverfið minna...

Turninn á Litla-Hrauni verður rifinn: „Liður í því að gera um­hverfið minna þrúgandi“

202
0
Páll Winkel fangelsismálastjóri segist mjög ánægður með að til standi að ráðast í endurbyggingu - og bætur á Litla-Hrauni við Eyrarbakka. VÍSIR/VILHELM

Ásýnd Litla-Hrauns mun taka miklum breytingum á næstu árum og mun hinn einkennandi turn fangelsisins brátt heyra sögunni til. Til stendur að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á fangelsinu og segir fangelsismálastjóri að breytingarnar séu meðal annars liður í því að gera allt umhverfið manneskjulegra og minna þrúgandi.

<>
Svona mun Litla-Hraun líta út að loknum framkvæmdum.
VA ARKITEKTAR

Þetta segir Páll Winkel fangelsismálastjóri í samtali við Vísi. „Með nýjum radar- og eftirlitskerfum þá gegnir þessi turn ekki lengur neinu hlutverki. Ásýnd fangelsisins mun breytast mikið og við höfum lagt á það áherslu við endurbættur og endurbyggingu að fangelsið falli vel inn í umhverfið.

VA ARKITEKTAR

Þetta er liður í því að gefa umhverfið minna þrúgandi, ekki bara fyrir fanga heldur sömuleiðis þá sem heimsækja fanga. Það er mikilvægt.“

VA ARKITEKTAR

Páll segir að það hafi verið valin vinningstillaga frá VA Arkitektum sem nú sé verið að fullvinna. Hann segir að stærsta breytingin varðandi starfsemi fangelsisins muni fela í sér að hægt verði að aðskilja hópa fanga með öruggum hætti, sem hafi hingað til verið mjög erfitt.

VA ARKITEKTAR

„Við viljum gera umhverfið manneskjulegra og uppbyggilegra, eins og hægt er í öryggisfangelsi. Það verður sömuleiðis mun betri vinnuaðstaðan fyrir alla okkar starfsmenn – fangaverði, sálfræðinga, lækna og svo framvegis. Og síðast en ekki síst standur til að stórbæta heimsóknaraðstöðuna sem er alls ekki góð eins og mikið hefur verið fjallað um. Og það hefði ekki mátt gerast seinna,“ segir Páll.

Litla-Hraun eins og það lítur út núna.
VÍSIR/VILHELM

Páll segir að áætlanir geri ráð fyrir að framkvæmdum ljúki eftir um tvö ár.

Heimild: Visir.is