Home Fréttir Í fréttum Styttist í að framkvæmdir geti hafist á þróunarreit við smábátahöfn

Styttist í að framkvæmdir geti hafist á þróunarreit við smábátahöfn

162
0

Drög að samkomulagi milli Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um lóðirnar við Grófina 2 og 2a, var lagt fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar á fundi þess í gær og var bæjarlögmanni ásamt bæjarstjóra falið að undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins.

<>

Þá var þróunarsamningur við Reykjanes Investment ehf. Einnig lagður fyrir, en félaginu var úthlutað svæðinu eftir útboð.

Samkvæmt þessu styttist í að framkvæmdir geti hafist á svæðinu. Tvö fyrirtæki buðu í lóðirnar á sínum tíma, Reykjanes investment ehf., og Húsagerðin ehf.

Í útboðinu var sérstaklega litið til þess hvaða hugmynd myndi best styðja við þá framtíðarsýn að landnotkun þróist í blandaða byggð íbúða, sérverslana, veitingastarfsemi og þjónustu sem tengist hafnarstarfsemi og ferðaþjónustu.

Auk þess sem litið var til þess hvernig framkomnar hugmyndir kallast á við einkenni og ásýnd svæðisins í heild.

Þar fyrir utan munaði rúmlega eitt hundrað milljónum króna á tilboðum fyrirtækjanna tveggja.

Heimild: Sudurnes.net