Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda 25 íbúðir á besta stað á Flúðum

25 íbúðir á besta stað á Flúðum

254
0
Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps, og Hörður Úlfarsson, framkvæmdastjóri Gröfutækni ehf., eftir undirritun samningsins.

Skrifað var undir verksamning milli Hrunamannahrepps og fyrirtækisins Gröfutækni ehf. í dag. Þar með er hafin uppbygging á fyrsta áfanga íbúðahverfisins Byggða á Bríkum á Flúðum. Alls verða byggðar 25 íbúðir.

<>

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í byrjun janúar og vinnst verkefnið í tveimur áföngum. Sá fyrri felur í sér gerð á nýjum götum í hverfum og sá seinni í umfangsmikilli vinnu við tengingu lagna innan hverfisins. Verklok fyrsta áfanga eru þann 15. júlí árið 2023.

Nýja hverfið verður staðsett þar sem svarti hringurinn er.

Nýja íbúðahverfið mun liggja að svæði golfvallarins á Flúðum að Efra Seli. Í þessum fyrsta áfanga mun tveimur fjögurra íbúða raðhúsum, tveimur þriggja íbúða raðhúsum, fjórum parhúsum og þremur einbýlishúsum vera úthlutað.

„Það er ljóst að beðið hefur verið eftir lóðum á þessum eftirsóknarverða stað, þar sem veðrið er ávallt með besta móti, stutt er í helstu náttúruperlur þjóðarinnar auk þess sem víðerni hálendisins er innan seilingar auk góðrar þjónustu þéttbýlisins á Flúðum.

Verði eftirspurn eftir lóðum meiri en hægt er að verða við er heimild í útboðinu til þess að ráðist verði strax í gerð annarrar götu og sem gefur þá möguleika á nær tvöfalt fleiri íbúðum í fyrsta áfanga,“ segir í tilkynningu frá Hrunamannahreppi.

Heimild: Visir.is