Home Fréttir Í fréttum 01.12.2022 Bygging hjúkrunarheimilis í Hveragerði

01.12.2022 Bygging hjúkrunarheimilis í Hveragerði

243
0
Mynd: Mats wibe / hveragerdi.is

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir, Heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðisbær, auglýsa eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og byggingu 22 rýma hjúkrunarheimilis andspænis núverandi dvalar- og hjúkrunarheimilinu ÁS við Hverahlíð 19 í Hveragerði.

<>

Hér er um að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir með tilliti til hæfi og reynslu. Leitað er að aðilum, sem geta tekið að sér að hanna og byggja 22 rýma hjúkrunarheimili fyrir fasta fjárhæð samkvæmt alútboðsaðferð.

Áætluð húsrýmisþörf er 1.430  m2 (BR).

Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.is

Útboðsgögn afhent: 26.10.2022 kl. 00:00
Skilafrestur 01.12.2022 kl. 12:00
Opnun tilboða: 01.12.2022 kl. 13:00

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Ríkiskaupa.