Home Fréttir Í fréttum 15.11.2022 Ný selalaug og tilfærsla á skála í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

15.11.2022 Ný selalaug og tilfærsla á skála í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

329
0
Kópur í Húsdýragarðinum. VÍSIR/VILHELM

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Ný selalaug og tilfærsla á skála í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum,  útboð 15634

Framkvæmdin felst í gerð nýrrar selalaugar og tilfærslu á skála í Fjölskyldu og húsdýragarðinum.

Framkvæmdin við selalaugina felst í gerð nýrrar selalaugar ásamt því að byggja nýtt þjónustuhús fyrir seli. Tengja skal nýja selalaug við núverandi laug og aðlaga lóð umhverfis nýbyggingar.

Tilfærsla á skála felst í tilfærslu á veitingarskála. Skálinn verður fluttur vegna nýrrar viðbyggingar við veitingarskála. Nýr staður fyrir skálann er gengt selalaug, um 150 m frá núverandi staðsetningu skálans.

Tekið er fram að starfsemi verður í garðinum á meðan framkvæmdum stendur. Afmarka þarf vinnusvæði og tryggja öryggi dýra, gesta og starfsfólk garðsins. Verktaki skal hafa fullt samráð við eftirlitsaðila verkkaupa á verktíma og gefa tímanlegar verkáætlanir fyrir hverja viku

Helstu verkþættir og áfangar eru: 
•          Tilfærsla á skála – verklok 29. febrúar 2023
•          Fullnaðarfrágangur selalaugar, húss og lóðar 18. október 2023

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 18. október 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef  Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 15. nóvember 2022.