Home Fréttir Í fréttum 25.10.2022 Sauðárkrókur, endurbygging Efrigarðs 2022

25.10.2022 Sauðárkrókur, endurbygging Efrigarðs 2022

206
0
Mynd: Ruv.is

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Efrigarðs í Sauðárkrókshöfn.

<>

Helstu magntölur og verkþættir eru:

• Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
• Þilskurður fyrir stálþilsrekstur um 90 m.
• Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum.
• Jarðvinna, fylling og þjöppun.
• Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og stögum.
• Steypa um 90 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 11. október 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. október 2022.

 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.