Home Fréttir Í fréttum Háhraðlestin í Kaliforníu hefur breyst í martröð

Háhraðlestin í Kaliforníu hefur breyst í martröð

107
0
Svona á lestin á líta út þegar hún verður tilbúin. Hvenær sem það verður.

New York Times segir að lestin verði ekki tilbúin á þessari öld. Það er minnst 80 árum eftir áætlun.

<>

Áætlaður kostnaður við háhraðalestina milli Los Angeles og San Fransisco hefur margfaldast frá því framkvæmd hennar var samþykkt árið 2008. New York Times fjallar um málið.

Lestin verður fyrsta háhraðalestin í Bandaríkjunum. Japanir fóru sína fyrstu ferð í slíkri lest árið 1964 milli Tokyo og Shin-Ōsaka og hafa byggt afar gott lestarkerfi. Kínverjar hófu sömu vegferð árið 2008 og hafa síðan þá lagt 40.000 kílómetra af lestarteinum.

Lestin í Kaliforníu verður 840 kílómetra löng. Að auki er á teikniborðinu tveir kaflar í viðbót, til San Diego og Sacramento, en þeir hafa ekki verið samþykktir.

Flókin framkvæmd

Það lá fyrir í upphafi að framkvæmdin yrði flókin, upp brattar brekkur og með mörgum löngum jarðgöngum. En verkefnið hefur breyst töluvert frá árinu 2008 þar sem pólitísk öfl hafa haft áhrif leiðina sem lestin átti að fara. Þetta hefur aukið kostnaðinn.

Heimild: Vb.is