Vatnslagnir í iðnaðarhverfinu á Egilsstöðum þykja of grannar til að þær geti fyllilega annað vatnsþörf slökkviliðs ef þar kæmi upp stórbruni á við þann sem varð í versluninni og þvottahúsinu Vaski fyrir skömmu. Vaskur var nógu utarlega í hverfinu til að hægt væri að leggja slöngur í brunahana í öðrum hverfum.
Þá eru dæmi eru um að fyrirtæki í hverfinu hafi ekki geta sett upp úðakerfi þar sem vatnslagnir í götunni ráða ekki við slíkt.
Fyrirtæki í húsnæði yfir ákveðinni stærð eiga að vera með úðakerfi og fyrirtækið Brúnás sem framleiðir innréttingar er á þeim mörkum. Brúnás fékk þau svör frá HEF veitum að stofnlögn í hverfinu væri of grönn fyrir úðakerfi.
Aðalsteinn Þórhallsson, framkvæmdastjóri HEF Veitna, segir að ný stofnlögn í iðnaðarhverfinu á Egilsstöðum sé á framkvæmdaáætlun og stefnt að endurnýjun og stækkun næsta sumar.
Heimild: Ruv.is