Home Fréttir Í fréttum Sækja um lóð undir steypustöð í Helguvík

Sækja um lóð undir steypustöð í Helguvík

112
0

Steypustöðin ehf. hefur sótt um lóð undir steypustöð í Helguvík. Sótt er um óstofnaða lóð við Stakksbraut í Helguvík til skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Garðs, en lóðin er innan sveitarfélagamarka Garðs.

<>

Nefndin tekur vel í erindið og er skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Steypustöðin ehf. er þegar með steypustöð í Helguvík en þarf að flytja stöðina þar sem hún er í dag á lóð sem hefur verið úthlutað undir kísilver Thorsil í Helguvík.

Heimild: Víkurfréttir.is