Home Fréttir Í fréttum 19.10.2022 Hleðslustöðvar í bílastæðahús

19.10.2022 Hleðslustöðvar í bílastæðahús

192
0
Mynd: Mbl.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hleðslustöðvar í bílastæðahús, útboð nr. 15663.

Verkið felst í því að útvega og setja upp hleðslustöðvar fyrir bílahús Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Um er er að ræða 37 hleðslustöðvar í bílahús Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Innifalið í verkinu er útvegun búnaðarins, uppsetning, tenging þeirra við rafmagn með álagsstýringu og fjarskiptakerfi.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 27. september  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 18. október 2022.