RARIK og Orkusalan óska eftir tilboðum í niðurrif íbúðarhúsa Reykjarhóls í Fljótum og Skeiðsfossvirkjunar nr. 3 í Fljótum og jöfnun lands eftir niðurrif.
Helstu magntölur eru: Rif á þakvirki 272 m², rif steinsteyptra veggja um 110m³, jöfnun svæðis með uppgröfnu efni 300m³.
Útboðsgögn er hægt að óska eftir í tölvupósti með með því að senda beiðni á netfangið stod@stodehf.is frá og með fimmtudeginum 30. ágúst 2022 án endurgjalds. Í beiðni útboðsgagna skal skilgreina nafn , kennitölu, síma og póstfang umsækjanda.
Frestur til að skila tilboðum er til kl. 13.00 fimmtudaginn 15. september 2022 í afgreiðslu Stoðar ehf. verkfræðistofu, Aðalgötu 21, Sauðárkróki þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verklok eru áætluð 15. nóvember 2022.
RARIK ohf.
Orkusalan