Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Dælustöð vatnsveitu í Vetrarmýri- Jarðvinna, mannvirki og lagnir.
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Dælustöð vatnsveitu í Vetrarmýri- Jarðvinna, mannvirki og lagnir.
Innifalið í verkinu er bygging úr steinsteypu, jarðvinna vegna mannvirkis, lagna og lóðar, frágangur mannvirkisins að utan og innan, frágangur lóðar, smíði og uppsetning lagna, loka, dælna og annars búnaðar, rafmagnskerfi og lagnir í lóð.
…………. Helstu magntölur eru:
Gröftur | 610 m3 |
Klapparskering | 610 m3 |
Vatns- og fráveitulagnir í lóð | 152 m |
Veggja/undirstöðumót | 400 m2 |
Plötumót | 55 m2 |
Járnbending | 4650 kg |
Steypa | 60 m3 |
Fylling og landmótun | 265 m3 |
Loftræstistokkur | 5 m |
Loftræstibúnaður | 1 stk |
Uppsetning ryðfrírra vatnsveitulagna og loka í lokahúsi. Verkhluti inniheldur suðu á ryðfríum lögnum, smíði undirstaða, uppsetningu á dælum og önnur tengd verk.
Stýriskápur og aðaltafla með búnaði skv. teikningum.
Tenging stjórn- og mælabúnaðar vatnsveitu.
Útboðsgögn er hægt að nálgast hér á vefsíðu Garðabæjar.
Tilboðum skal skila fyrir 8. september 2022 kl:14:00. Sjá nánar í kafla 0.4.4 í útboðs- og verklýsingu.