Home Fréttir Í fréttum Reynir fjárfestir í gamla bænum á Blönduósi

Reynir fjárfestir í gamla bænum á Blönduósi

548
0
Mynd: Huni.is

Húnvetningurinn Reynir Finndal Grétarsson hefur áhuga á að eignast fasteignir í gamla bænum á Blönduósi og vinnur að því að kaupa Aðalgötu 6 þar sem Hótel Blanda er og tvær íbúðir á Aðalgötu 8, í húsi sem heitir Helgafell.

<>

Hótelið hefur ekki verið í rekstri undanfarin misseri en eignarhaldsfélag sem átti húsið var úrskurðað gjaldþrota fyrir rúmu ári síðan. Ef Reynir eignast hótelið ætlar hann að opnað það aftur og stækka.

„Félag sem ég á er að vinna í því að kaupa hótelið og einhverjar fleiri eignir í gamla bænum. Hugmyndin er sú að opna hótelið aftur, en reyna að stækka það með viðbyggingu eða með því að gera herbergi í nærliggjandi húsnæði,“ segir Reynir í samtali við Húnahornið.

Hann segir að þau sem eru með honum í þessu, og þar á meðal er Blönduósingurinn Bjarni Gaukur Sigurðsson, telji að gamli bærinn á Blönduósi sé perla sem hægt er að gera meira með.

„Við viljum fá fólk til að stoppa á Blönduósi, en þá þarf líka að vera meiri afþreying á staðnum. Allt þarf þetta að skoða í samvinnu við fleiri aðila. Bæjaryfirvöld hafa verið í sambandi við okkur með þetta mála svo ég á ekki von á öðru en að menn vilji taka höndum saman um að gera Blönduós að spennandi stað fyrir ferðamenn og vonandi enn betri stað til að búa á,“ segir Reynir.

Aðspurður hvers vegna hann ákveði að fjárfesta á Blönduósi segir Reynir: „Það er bærinn minn og sveitirnar í kring sveitin mín. Ég á mikið af vinum og ættingjum á Blönduósi og mér þykir mjög vænt um bæinn. Svo sé ég líka bara tækifæri til góðra verka.“

Heimild: Huni.is