Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis á Höfn hefst í haust

Bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis á Höfn hefst í haust

192
0

Bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis á Höfn hefst á vegum FSRE í haust. Tilboði Húsheildar um byggingu heimilisins verður tekið.

<>

Nú hillir undir að framkvæmdir við byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn hefjist.

Tilboði Húsheildar ehf í byggingu 30 rýma hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði hefur verið samþykkt af heilbrigðisráðuneytinu fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Sveitarfélaginu Hornafirði.

Um er að ræða viðbyggingu við eldra heimili, Skjólgarð, en þar eru nú 27 hjúkrunarrými, flest í tvíbýli. Húsnæði Skjólgarðs uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til húsnæðis og aðbúnaðar á hjúkrunarheimilum í dag.

Fyrirhuguð framkvæmd er annars vegar nýbygging upp á 1.400 m² að stærð og hins vegar breytingar á núverandi byggingu sem er 880 m² að stærð eða samtals 2.280m².

Nýja hjúkrunarheimilið verður reist á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Víkurbraut 31. Heilbrigðisráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður munu standa saman að byggingu hússins og breytingum sem gerðar verðar á hluta eldra húsnæðis í tengslum við framkvæmdina.

Miðað er við að framkvæmdir við heimilið hefjist á haustmánuðum 2022 og að það verði tekið í notkun árið 2024. Áætlaður framkvæmdakostnaður vegna byggingar hjúkrunarheimilisins eru tæplega 2,5 milljarðar króna.

Verkefnið verður fjármagnað þannig að ríkissjóður greiðir 75,3% heildarkostnaðar en sveitarfélagið Hornafjörður 24,7%.

Heimild: FSRE.is