Home Fréttir Í fréttum Horn­firðingar una ekki úr­skurði inn­viða­ráðu­neytisins

Horn­firðingar una ekki úr­skurði inn­viða­ráðu­neytisins

192
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

Hornfirðingar ætla ekki að una úrskurði innviðaráðuneytisins sem segir að sveitarfélagið hafi brotið lög þegar lóðarhöfum einum við Hagaleiru var synjað um að fá gatnagerðargjöld felld niður.

<>

Fréttablaðið greinir frá en þar segir að sveitarfélagið hafi ekki fengið upplýsingar um að kæran væri til umfjöllunar í ráðuneytinu. Þá hafi þeir ekki fengið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

„Engar skýringar eða leiðir eru til að rekja það að kæra lá fyrir í ráðuneytinu þar sem of langur tími var liðinn til að rekja tölvupósta,“ segir í fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar.

Lóðarhöfum verður því synjað um endurgreiðslu gatnagerðargjalda líkt og hafði verið ákveðið. Endurgreiðslan sem er synjað nemur tæpum þremur milljónum króna.

Sveitarfélagið telur framkvæmdirnar ekki hafa verið í trássi við jafnræðisreglu. Þá sé ekki um mismunun að ræða þar sem þeir sem fengu frest á framkvæmdum hafi ekki verið að sækja um lóð eftir að reglur um afslátt af gagnagerðargjöldum runnu út.

Í fundargerðinni segir að úrskurður innviðaráðuneytisins sé ekki bindandi fyrir sveitarfélagið en bæjarráð telur að málsmeðferðin hafi verið gölluð.

Heimild: Visir.is