Home Fréttir Í fréttum 09.08.2022 Laxárdalsvegur (59), Sýslumörk-Innstrandavegur

09.08.2022 Laxárdalsvegur (59), Sýslumörk-Innstrandavegur

407
0
Laxárdalsvegur

Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu Laxárdalsvegar á um 7,8 km kafla. Vegurinn verður að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum á plan- og hæðarlegu. Á vegkaflanum er einbreið brú yfir Laxá sem ekki á að endurnýja, og er nýr vegur aðlagaður að henni.

<>

Helstu magntölur eru:
– Bergskeringar                      19.100 m3
– Fyllingar                              26.970 m3
– Fláafleygar                          24.500 m3
– Ræsalögn                                314 m
– Styrktarlag                         29.970 m3
– Burðarlag, útlögn                15.230 m3
– Klæðing                             49.100 m2

Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2023.

 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 25. júlí   2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. ágúst 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.