Home Fréttir Í fréttum 15.08.2022 Hverfið mitt 2022, austur – Stálstigar í Breiðholti og Gufunesi

15.08.2022 Hverfið mitt 2022, austur – Stálstigar í Breiðholti og Gufunesi

277
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2022, austur – Stálstigar í Breiðholti og Gufunesi, útboð nr. 15585

Lauslegt yfirlit yfir verkið 
Um er að ræða smíði á stálstiga milli efra og neðra Breiðholts og stálstiga í Gufunesi frá göngustíg niður í fjöru. Verkið snýst um útvegun og framleiðslu á fullbúnum stiga með þrepum, millipöllum og handriðum ásamt undirstöðum og jarðvegsskrúfum. Stiginn skal vera heitgalvanhúðaður og ristarþrep og pallar skulu hafa gott hálkuviðnám.

Áætluð afhending: 30. september 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 26. júní  2022. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 15. ágúst  2022.