Home Fréttir Í fréttum Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng

Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng

126
0
Fjarðarheiðargöng. Fyrirhugaður gangamunni í Seyðisfirði. VEGAGERÐIN/MANNVIT

Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu.

<>

Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni.

Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 en fyrirhuguð jarðgöng undir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar verða í hópi lengstu vegganga í heimi, 13,3 kílómetra löng.

Vegagerðin áætlar í matsskýrslu að kostnaður verði um 45 milljarðar króna. Þar segir að í samgönguáætlun sé gert ráð fyrir 17,7 milljörðum til verksins, en það er aðeins um 40 prósent áætlaðs kostnaðar.

Gangamunni Egilsstaðamegin við Eyvindará.
VEGAGERÐIN/MANNVIT

Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem samþykkt var á lokadögum þingsins í síðasta mánuði, kemur fram hvernig ætlunin er að brúa bilið. Þar segir:

„Yfir 15 ára tímabil jarðgangaáætlunar er stefnt að því að bein framlög til gangagerðar nemi um 25 milljörðum króna og muni sú upphæð standa undir helmingi framkvæmdakostnaðar. Það sem upp á vantar muni koma úr gjaldtöku af umferð í jarðgöngum. Fyrstu göng áætlunarinnar eru Fjarðarheiðargöng.“

Sérstök jarðgangagjöld eru boðuð í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem Bjarni Benediktsson fjár­mála- og efna­hags­ráðherra fékk samþykkta á Alþingi.
STÖÐ 2/SKJÁSKOT

Samgöngufélagið segir í umsögn að þessi hugmynd gangi tæpast upp, þar sem tvenn fjölförnustu veggöng þjóðvegakerfisins, annarsvegar Hvalfjarðargöng hafi þegar verið greidd upp með veggjöldum, og hinsvegar Vaðlaheiðargöng en þar sé gjaldtaka nú þegar sem renni til kostnaðar við gerð þeirra.

Hæpið sé að leggja gjald á umferð um Strákagöng, Múlagöng og göng undir Breiðadals- og Botnsheiði þar sem þau uppfylla ekki kröfur dagsins í dag. Þá séu ekki eftir nema fimm göng, sem teljast uppfylla kröfur, það er Dýrafjarðargöng, Bolungarvíkurgöng, Héðinsfjarðargöng, Norðfjarðargöng og Fáskrúðsfjarðargöng, og umferð sem fari um þau standi vart undir miklum tekjum.

Innheimtu veggjalda í Hvalfjarðargöng lauk haustið 2018 þegar vegfarendur voru búnir að greiða upp göngin. Núna eru horfur á að gjaldtaka hefjist að nýju.
VILHELM GUNNARSSON

Segir Samgöngufélagð forsendur fyrir gerð Fjarðarheiðarganga byggðar á svo veikum grunni að ekki sé forsvaranlegt að ráðast í útboð og framkvæmdir nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig að gjaldtöku verði staðið, fjárhæð gjalds, tímalengd gjaldtöku og annað sem máli kann að skipta.

Jafnframt segir félagið á allan hátt eðlilegra og farsælla að tengja fyrst Norðfjörð og Seyðisfjörð með tvennum göngum um Mjóafjörð. Ekki væri fullnægjandi rökstuðningur fyrir þeirri afdrifaríku ákvörðun að ráðast fyrst í gerð Fjarðarheiðarganga. Skýrsla sem ákvörðunin byggi á, og út kom árið 2019, væri ekki að öllu leyti byggð á traustum grunni.

Tvenn jarðgöng sem tengja Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð skapa strax hringtengingu milli byggða Austfjarða og því farsælla að þau verði á undan Fjarðarheiðargöngum, að mati Samgöngufélagsins.
GRAFÍK/STÖÐ 2

Með göngum milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, þar sem sjúkrahús fjórðungsins er, yrði nánast alltaf fær leið til og frá Seyðisfirði þótt vissulega yrði langt til Egilsstaða. Væri vandséð af hverju þörf til að komast til Egilsstaða væri miklu meiri fyrir Seyðfirðinga en Norðfirðinga.

Ýmis ávinningur annar skapaðist með göngum milli Norðfjarðar og Seyðisfjarðar sem ekki fengist með Fjarðarheiðargöngum, þar á meðal hringtenging, auk þess sem heilsársleið milli Mjóafjarðar og annarra landshluta opnaðist, segir í umsögn Samgöngufélagsins.

Heimild: Visir.is