Home Fréttir Í fréttum 02.12.2025 Suður­eyri, flot­bryggj­ur2025

02.12.2025 Suður­eyri, flot­bryggj­ur2025

4
0
Suðureyri. Mynd: Ísafjarðarbær

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í verkið “ Suðureyri, flotbryggjur 2025”. Verkið felst í smíði og uppsetningu á tveimur nýjum flotbryggjum, 20 m x 3 m,  með viðlegufingrum og landgangi. 

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 18. nóvember 2025.

Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. desember 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.