Home Fréttir Í fréttum 21.07.2022 Útrás og jarðvinna hreinsistöðvar fyrir Selfoss

21.07.2022 Útrás og jarðvinna hreinsistöðvar fyrir Selfoss

293
0
Mynd: Mbl.is

Fasteignafélag Árborgar slf óskar eftir tilboðum í:

<>

„Útrás og jarðvinna hreinsistöðvar“

Verkið felur í sér lagningu útrásar- og yfirfallslagna frá væntanlegri hreinsistöð fyrir Selfoss, að Ölfusá við Geitanes. Einnig skal gera útrás út í Ölfusá í Geitanesflúðum og grafa fyrir hreinsistöðinni.

Að lokum skal ganga frá yfirborði vinnusvæðis á sem bestan hátt í samráði við eftirlit.

Helstu magntölur eru:

Gröftur álausu efni                          13.200 m³

Slóðagerð                                        1.300 m³

Sprengingar / Fleygun                      4.000 m³

Gerð varnargarðs út í Ölfusá             1.650 m³

Fráveitulögn Ø 800 mm                       735 m

Verkinu skal að fullu lokið 15. apríl 2023.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

https://arborg.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/156826cc-47c2-4a93-a0c7-e89dd5764fa6

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðan di ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 fimmtudaginn 21. júlí 2022.

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar
tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

 

Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar