Home Fréttir Í fréttum Verktakar á Suðurnesjum skoða mönnun framtíðarverkefna

Verktakar á Suðurnesjum skoða mönnun framtíðarverkefna

160
0
Mynd: Vf.is Frá fundi SAR með verktökum innan samtakanna.

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, boðaði til fundar með nokkrum verktökum sem eru innan samtakana til að fara yfir þau verkefni sem eru framundan næstu árin á Reykjanesi.  Voru kynnt verkefni sem fyrirhugað er að fara í á næstu 15-20 árum fyrir um 200 milljarða.

<>

Góðar umræður voru á fundinum yfir hvernig hægt verði að manna þessi verkefni.  Einnig rætt um að fjölga þarf  iðnaðarmönnum og hvernig auglýsa skuli iðnaðarstörf sem framtíðarstarf  fyrir ungt fólk. Að sögn Guðmundar Péturssonar formanns SAR var ákveðið að boða til fundar með öllum verktökum á svæðinu í lok janúar eða í byrjun febrúar og fara yfir stöðuna og hvernig bregðast megi við.

Heimild: Vf.is