Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 4,25 km kafla Búrfellsvegar (351), frá Klausturhólum að Búrfelli
Helstu magntölur eru:
– Fyllingarefni úr námum 9.800 m³
– Skeringar 5.000 m³
– Styrktarlag 0/63 7.900 m³
– Burðarlag 0/22 6.000 m³
– Steinefni 8/16 770 m³
– Tvöföld klæðing 25.500 m²
– Frágangur fláa 36.000 m²
Verklok eru 15. júní 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 16. júní 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. júlí 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.