Home Fréttir Í fréttum 05.07.2022 Siglufjörður – Endurbygging Innri hafnar 2022

05.07.2022 Siglufjörður – Endurbygging Innri hafnar 2022

149
0

Fjallabygðarhafnir óska eftir tilboðum í verkið „Siglufjörður – Endurbygging innri hafnar
2022“. Helstu verkþættir eru:

<>
  •  Grafa fyrir akkerisstögum og skera gat í eldra þil fyrir akkerisstögum.
  •  Fjarlægja polla og skúr við núverandi bryggju.
  •  Jarðvinna, fylling og þjöppun.
  •  Reka niður 105 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ14-770 10/10 og ganga frá stagbitum
    og stögum.
  •  Steypa um 160 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. maí 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 17. júní 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. júlí 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.