Home Fréttir Í fréttum 07.07.2022 Miðborgarleiksskóli og miðstöð barna. Umsjón og eftirlit

07.07.2022 Miðborgarleiksskóli og miðstöð barna. Umsjón og eftirlit

160
0
Mynd: Reykjavík.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Miðborgarleiksskóli og miðstöð barna. Umsjón og eftirlit, EES útboð 15567

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 7.júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 7. júlí 2022.

Lýsing á verkinu: 
Verkið snýst um umsjón og eftirlit fyrir hönd verkkaupa með framkvæmdum við uppbyggingu nýs leikskóla og fjölskyldumiðstöðvar við Njálsgötu 89, 101 Reykjavík.
Framkvæmdin felst í uppbyggingu og lóðarfrágangi.

Húsnæðið er á þremur hæðum þar sem leikskóli verður á fyrstu 2. hæðum  og á 3. hæð verður staðsett fjölskyldumiðstöð. Á lóðinni í dag er gæsluvöllur með steinsteyptum vegg á lóðarmörkum. Núverandi byggingar á lóð verða nýttar áfram sem hluti af leikskólastarfinu.

Hönnun byggir á vinningstillögu Basalt arkitekta og Landslags í hönnunarsamkeppni á vegum Reykjavíkurborgar og Arkitektafélags Íslands sem haldin var um haustmánuðum 2020.

Helstu stærðir bygginga eru:  

  • Leikskóli og fjölskyldumiðstöð (MHL. 03) á þremur hæðum auk tæknikjallara. Megin byggingarefni er krosslímdar timbureiningar. Heildarstærð nýbyggingar er 1.435,6 m2.
  • Núverandi byggingar á lóð (MHL. 01 og 02) eru á einni hæð alls 63,7 m2.

Helstu verkþættir eru: 

  • Uppbygging og fullnaðarfrágangur húsnæðis
  • Lagning raf-, loftræsti og lagnakerfa
  • Fullnaðarfrágangur lóðar