Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Ístak hf. skrifar undir samninga við Félagsstofnun stúdenta vegna Hótel Sögu

Ístak hf. skrifar undir samninga við Félagsstofnun stúdenta vegna Hótel Sögu

498
0
Karl Andreassen, Magnús Orri Einarsson frá Félagsstofnun stúdenta, Gísli H. Guðmundsson og Hermann Guðmundsson Mynd: Ístak hf.

Í gær skrifuðu Ístak og Félagsstofnun stúdenta undir tvo samninga. Undirritaður var samningur um utanhússviðgerðir þar sem allt ytra byrði hússins verður lagfært.

<>

Skipt um klæðningu á þaki, gluggaskipti á hluta hússins, glerskipti og gluggaviðgerðir, múrviðgerðir, málun o.fl.

Hótel Saga. Mynd: Ístak hf.

Áætluð verklok á því verkefni eru í september 2023. Hinn samningurinn var um uppbyggingu á 113 stúdíóíbúðum í norðurálmu hússins. Íbúðirnar verða teknar í notkun fyrri hluta næsta árs.

Í dag eru um 45 manns starfandi á vegum Ístaks í húsinu ef með eru taldir starfsmenn undirverktaka. Reikna má með að þeim fjölgi enn frekar á næstu vikum.

Heimild: Ístak.is