Home Fréttir Í fréttum Að minnsta kosti bið fram á haust eftir forgangsröðun jarðganga

Að minnsta kosti bið fram á haust eftir forgangsröðun jarðganga

105
0
Ólafsfjarðargöng eða Múlagöng eru um 3.400 metrar að lengd og er að finna milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. WIKIPEDIA COMMONS

Það ætti að koma í ljós á næsta löggjafarþingi hvaða jarðgangakostum verður forgangsraðað. Þá mun þingið taka fyrir þingsályktunartillögu um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2023-2037 þar sem jarðgangakostum verður forgangsraðað

<>

Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Hildu Jönu Gísladóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar fyrir Norðausturkjördæmi.

Spurði hún innviðaráðherra að því hvort til standi að flýta jarðgangaframkvæmdum í Fjallabyggð og ef svo, hvenær yrði stefnt að því að hefja framkvæmdir.

Þrátt fyrir að Héðinsfjarðargöngin tryggi greiðar innanbæjarsamgöngur í Fjallabyggð, eru einbreiðu göngin Strákagöng og Múlagöng ákveðin flöskuháls, ekki síst á sumrin þar sem kemur fyrir að göngin anni ekki umferð um þau.

Á veturna kemur fyrir að íbúar þurfi að sætta sig við að vera innlyksa vegna ófærðar.

Heimamenn hafa því ítrekað kallað eftir því að ráðist verði í frekari jarðgangaframkvæmdir í sveitarfélaginu.

Hefur þar verið horft til breikkunar Múlaganga, sem liggja frá Ólafsfirði yfir í Eyjafjörð auk nýrra ganga um Siglufjarðarskarð sem kæmi í stað Strákaganga, sem tengja saman Siglufjörð og Fljótin.

Í svari innviðaráðherra er tekið fram að breikkun Múlaganga og ný göng um Siglufjarðarskað séu á meðal ellefu verkefna sem mælt sé með að tekið verði fyrst til nánari skoðunar.

Þá sé unnið heildstæðri greiningu á jarðgangakostum á Íslandi í samræmi við samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024.

Þar er gert ráð fyrir því að valkostir á einstökum leiðum verði metnir með tilliti til fýsileika, kostnaðar og félagshagfræðilegs ábata. Á grunni þeirrar greiningar verður síðan gerð tillaga að forgangsröðun jarðgangakosta til lengri tíma sem tekin verður til umfjöllunar við gerð nýrrar samgönguáætlunar.

Reiknað er með að tillaga til þingsályktunar um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2023–2037 verði lögð fyrir Alþingi næsta haust.

„Það mun því koma til kasta Alþingis að forgangsraða jarðgangakostum á grundvelli framangreindrar vinnu þegar tillaga að nýrri samgönguáætlun verður tekin til meðferðar á næsta löggjafarþingi,“ segir í svari Sigurðar Inga.

Heimild: Visir.is