Home Fréttir Í fréttum 05.07.2022 Vetrarþjónusta 2022-2025, Klettsháls

05.07.2022 Vetrarþjónusta 2022-2025, Klettsháls

220
0
Mynd: Vegagerðin.is

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með dráttarvél, um Klettsháls frá Fjarðarhornsá í Kollafirði að sunnan að Skálmardalsá að norðan.

<>

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um
framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.

Heildarlengd vegakafla er 11,8 km.

Verklok eru í apríl 2025.

 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 3. júní  2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. júlí 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.