Home Fréttir Í fréttum 16.06.2022 Beðahreinsun á stofnanalóðum 2022

16.06.2022 Beðahreinsun á stofnanalóðum 2022

148
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Beðahreinsun á stofnanalóðum 2022, útboð 15571

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Um er að ræða illgresis- og ruslahreinsun gróðurbeða (beðahreinsun) á stofnanalóðum, þ.e. gæsluvöllum, leikskóla- og skólalóðum.

Gróðurbeðunum eru skipt í tvo flokka, þ.e. gróðurbeð A og B. Gert er ráð fyrir tveimur hreinsunum á gróðurbeðum A en einni hreinsun á gróðurbeðum B.

Helstu magntölur eru:

  • Gróðurbeð A                           43.183 m2
  • Gróðurbeð B                          46.615 m2

Áætluð verklok: 1. september 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 09:30 þann 2. júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 16. júní 2022.