Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Verktakinn býr sig undir að hefjast handa í Teigsskógi

Verktakinn býr sig undir að hefjast handa í Teigsskógi

242
0

Borgarverk er byrjað að flytja tæki sín og tól að væntanlegu vinnusvæði í Teigsskógi. Fyrir helgi mátti sjá að grafa frá verktakanum var komin í Þorskafjörð og gerð klár til að hefja gröftinn í landi Þórisstaða þar sem núliggjandi Vestfjarðavegur hlykkjast upp á Hjallaháls.

<>

Það var þó Vegagerðin sjálf sem hóf verkið fyrr í mánuðinum með því að saga ofan af birkinu í vegstæðinu. Því má núna vel sjá móta fyrir veglínunni í utanverðum Þorskafirði þar sem þessi ellefu kílómetra umdeildi vegarkafli kemur til með að liggja um landslagið milli Þórisstaða og Hallsteinsness og þar með um jörðina Teigsskóg.

Vinnusvæðið í gær. Búið að saga ofan af birkiskóginum í nýja vegstæðinu við gamla vegslóðann að Gröf. Ræturnar og stofnarnir skilin eftir en torfið verður tekið upp og notað til að græða upp jarðvegssárin.
KMU

Neðsti hluti trjástofnanna er þó skilinn eftir til að mynda nýjan skóg. Verktakinn mun taka upp torf og gróður úr vegstæðinu og leggja það hliðar til síðari nota til að þekja jarðvegssárin.

Samkvæmt upplýsingum frá Borgarverki verður einn fyrsti verkþátturinn að fergja mýrlent svæði þar sem vegurinn kemur til með liggja ofan við eyðibýlið Gröf. Þar verður lagður jarðvegsdúkur og síðan farg sett ofan á hann og látið síga þar til jafnvægi næst.

Við afleggjarann að eyðibýlinu Gröf.
KMU

Verksamningur Vegagerðarinnar og Borgarverks upp á 1.235 milljónir króna var undirritaður þann 9. maí síðastliðinn. Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks, sagði að lokinni undirskrift að hann gerði ráð fyrir að byrjað yrði að sprengja og keyra út efni í annarri viku júnímánaðar. Hann kvaðst gera ráð fyrir að vera með 15 til 20 manns að jafnaði í verkinu og að vinnubúðir yrðu á Hallsteinsnesi.

Starfsmenn Borgarverks munu þó fyrst um sinn halda til í Gufudal, eins og þeir gerðu fyrir tveimur árum, þegar þeir endurbyggðu sjö kílómetra vegarkafla milli Skálaness og Gufudals við vestanverðan Gufufjörð. Því verki lauk í fyrrasumar og verður sá kafli hluti Vestfjarðavegar þar til brúun Gufufjarðar lýkur en verður eftir það sveitavegur fyrir bæina í Gufudal.

 

Við Búlká í landi Þórisstaða í gær. Grafa tilbúin að hefja verkið. Vaðalfjöll gnæfa yfir.
KMU

 

Samkvæmt verksamningi á lagningu vegarins um Teigsskóg að vera að fullu lokið um miðjan október á næsta ári. Þar með verður hægt að sneiða framhjá hinum 336 metra háa Hjallahálsi en núna er unnið að lagningu sex kílómetra tengivegar milli Hallsteinsness og Djúpadals, sem fyrst um sinn mun geta þjónað Vestfjarðaumferðinni en verður síðar sveitavegur fyrir Djúpadal.

Jafnframt er unnið að brúun Þorskafjarðar milli Kinnarstaða og Þórisstaða. Þar eru verklok áætluð sumarið 2024. Við það styttist Vestfjarðavegur um Þorskafjörð um níu kílómetra.

Frá brúarsmíðinni yfir Þorskafjörð.
KMU

Sigurþór Guðmundsson, sem er verkefnisstjóri Vegagerðarinnar, sagði í febrúar að síðar á þessu ári væri gert ráð fyrir að næsti áfangi yrði boðinn út; kafli yfir Gufufjörð, milli Melaness og Gróness, og út í Djúpafjörð, með 130 metra brú yfir Gufufjörð og 58 metra brú yfir Djúpafjörð. Lokaáfanginn yrði svo 210 metra löng brú yfir Djúpafjörð og væri gert ráð fyrir að hann yrði boðinn út á næsta ári.

Óvissa er þó um endanleg verklok Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Sigurþór hélt enn í vonina um að þau gætu orðið árið 2024 en gaf til kynna að þau gætu dregist til ársins 2025.

Heimild: Visir.is